Fréttabréf

Skráðu þig á póstlistann

Tölvupóstfangið þitt

leita Leita í  
 
Um Þúsund þjalir ehf.
Prenta   

Kæru listamenn og viðskiptavinir

Fyrst vil ég þakka ykkur öllum hjartanlega fyrir mjög góð og ánægjuleg samskipti á liðnum árum.

Þúsund þjalir ehf. voru stofnaðar af Ólafi Þórðarsyni 1997 og er skrifstofan því 12 ára á þessu ári. Hugmyndin að stofnun slíkrar skrifstofu var að safna á einn stað "öllum" listamönnum á Íslandi, þ.e.a.s. sviðslistamönnum og skapa þar með brunn sem allir geta sótt í. Fjölbreytni, skilvirkni og gott vinnulag hefur skapað skrifstofunni gott orð. Viðskiptavinir okkar skipta þúsundum og margir hafa verið í viðskiptum svo árum skiptir.

Á þessu ári 2009, nánar tiltekið 1. ágúst nk. verða Þúsund þjalir ehf. - umboðsskrifstofa listamanna 12 ára. 

Á Þúsund þjölum ehf. vinna ekki margir, en komast samt yfir mikið á hverjum degi. Vinnan göfgar.

Við gerum ýmislegt fyrir utan að sjá um listamenn, hugsa um pantanir ykkar og beiðnir. M.a. búum við til heimsíður, hreyfiborða á vefi, hönnum cd-umslög, plagöt, bæklinga o.fl., tökum ljósmyndir og eiginlega næstum allt sem við erum beðin um. Í framtíðinni verður hægt að sjá einhverja gripi og ljósmyndir frá okkur.

Viðburðarstýring er nýlegt orði í orðaflóru íslenskrar tungu. Fínt orð. Við hér erum ekki alveg lausir við viðburðarstýringar, eða að standa í stjórnenda hlutverkinu, þegar eithvað er um að vera. Reynsal okkar í þessum efnum er löng og ágætlega farsæl. Látið reyna á!

Þúsund þjalir ehf. - umboðsskrifstofa listamanna
Urðarstígur 4
101 Reykjavík
Kennitala: 611299-4359
Sími: 698-1200

Panta listamenn

Panta listamenn HÉR!

Settu okkur í Bookmark

Hvað gerum við