Prenta Það getur reynst venjulegu fólki örðugt að ná sambandi við listamenn, þegar eitthvað stendur til og fylgir því oft mikil vinna. En með þúsund þjölum er þetta leikur einn. Með þessari nýju síðu viljum við kappkosta að veita sem besta þjónustu. Með því að smella á tengilinn "Listamenn" má sjá fjölda listamanna sem eru á skrá. Þeir eru gróflega flokkaðir niður, þannig að það ætti að vera auðveldara að finna út hver er hver og hver hentar best hverju sinni. Það er ekki alltaf auðvelt að finna rétta atriðið. Við reynum að aðstoða á allan hátt. Við viljum taka fram að flokkunin á listamönnum, getur verið snúinn, það eru svo margir fjölhæfir, að suma er vart hægt að flokka. En lesendur ættu að fá sæmilega glögga mynd, og svo er þá bara að hringja og spyrjast fyrir. Við leysum málið. Athugið við erum enn að bæta við og lagafæra. | |